Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Lonicera |
|
|
|
Nafn |
|
altmannii |
|
|
|
Höfundur |
|
Reg. & Schmalh. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Túrkestantoppur |
|
|
|
Ætt |
|
Geitblaðsætt (Caprifoliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól-hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur með gula slikju. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Vor. |
|
|
|
Hæð |
|
2,5 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauffellandi runni, allt að 2,5 m hár. Ungar smágreinar purpura-dúnhærðar. Lauf allt að 6 × 0,85 sm, egglaga-til oddbaugótt, yfirleitt ydd, bogadregin við grunninn eða langydd, randhærð, oddur oftast dúnhærður, laufleggir allt að 5 mm. Blómin hvít, með gula slikju, tvö og tvö saman, stoðblöð 6,5 mm, blómleggir 6,5 mm, króna 12 mm, pípan grönn, stærri en fliparnir, hliðskökk, dúnhærð. Berin 8 mm, sporvala, appelsínurauð. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Túrkestan |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Græðlingar, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í beð, þyrpingar og fleira. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1978 og gróðursett í beð 1985, kelur mismikið. Óvíst hvort planta sé rétt greind. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|