Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Lonicera maximowicii
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   maximowicii
     
Höfundur   (Rupr.) Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpuratoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpurarauður.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Ungir sprotar purpuramengaðir, hárlausir eða dálítið þornhærðir.
     
Lýsing   Lauf allt að 11,5 × 5,5 sm, breið-oddbaugótt, dökkgræn og hárlaus ofan, lítið eitt dúnhærð neðan. Blómin purpurarauð, 1 sm, hárlaus utan, tvö og tvö saman, blómleggur 2 sm, hárlausir. Krónan með tvær varir, krónupípan stækkuð við grunninn, Berin eggvala, rauð, samvaxin.
     
Heimkynni   Manchuria (Amúrland), Kórea, Kína.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   í limgerði, blönduð beð, sem stakstæðir runnar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, sem sáð var til 1979 og gróðursett í beð 1984. Þrífst vel, keldur dálítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is