Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Lonicera sempervirens
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   sempervirens
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Pípnatoppur (Trompettoppur)
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn, klifrandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Sterk skarlats-appelsínugulur utan, gulari innan.
     
Blómgunartími   Vor-haust
     
Hæð   1-6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kröftugur, klifrandi, sígrænn runni. Ungir sprotar hárlausir.
     
Lýsing   Lauf allt að 8 × 5 sm, oddbaugótt eða ögn öfugegglaga, djúpgræn og glansandi ofan, blágræn - bláleit, og oft dúnhærð neðan, efstu 1-2 laufpörin samvaxin, mynda kringlóttar-aflangar skífur. Laufleggir 6,5 mm. Blómin sterk skarlats-appelsínugul utan, gulari innan, í 3-4 krönsum, sem skarast. Króna allt að 5 sm, með 5 eins krónublöð. Berin skærrauð.
     
Heimkynni   A & S Bandaríkin
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, http://www.wildflower.org
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Á klifurgrindur, á húsveggi.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 1991. Hefur kalið lítið eitt gegnum tíðina.
     
Yrki og undirteg.   ‘Superba’ (‘Red Coral’, ‘Red Trumpet’, ‘Rubra’, ‘Dreer’s
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is