Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cytisus decumbens
Ættkvísl   Cytisus
     
Nafn   decumbens
     
Höfundur   (Dur.) Spach.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flatsópur
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Skærgulur
     
Blómgunartími   Síðla vors til snemmsumars
     
Hæð   0,1-0,3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppsveigður eða jarðlægur runni, 0,1-0,3 m hár. Greinar dúnhærðar meðan þær eru ungar.
     
Lýsing   Lauf 6-20 × 3-4 mm, heil/óskipt, aflöng til öfugegglaga, legglaus, þéttdúnhærð einkum á neðra borði. blóm 13-16 mm, 1-3 saman, skærgul, blómleggir grannir, 8-13 mm, bikar 5 mm, bjöllulaga, hærð, fáninn 10-14 mm, egglaga. Belgurinn 20-32 × 6 mm, loðinn, fræ 4.
     
Heimkynni   Fjöll S Evrópu.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, sendnum eða malarbornu, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, 8 sm græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í þyrpingar, í beð, í kanta.
     
Reynsla   Er ekki til Lystigarðinum. Meðalharðgerður runni, þarf skýlingu, þolir illa flutning. Er með Rhizobium bakteríur á rótum og þarf þar af leiðandi ekki mikla áburðargjöf.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is