Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Delphinium |
|
|
|
Nafn |
|
nudicaule |
|
|
|
Höfundur |
|
Torrey & Gray. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Jarlaspori |
|
|
|
Ætt |
|
Sóleyjarætt (Ranunculaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Appelsínurauður. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
20-40 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Skammlíf fjölær jurt, ræturnar trefjarætur, stönglar hárlausir, bláleitir, 20-40 sm. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin 3-10 sm í þvermál, 3-5 skipt, hlutarnir grunn-flipóttir, hárlausir til dálítið dúnhærðir. Blómin í lotnum skúf, appelsínurauð, bikarblöð egglaga, hárlaus, 1 sm, sporinn allt að 2 sm, beinn, efri krónublöð gul með rauða odda, egglaga, tennt í oddinn, neðri krónublöðin mjó, sýld. Fræhýði beinast út á við, hárlaus, allt að 2 sm. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Kalifornía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
djúpur, frjór, framræstur |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
8 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í skrautblómabeð, í sumarblómabeð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Meðalharðgerð planta, stundum ræktuð sem sumarblóm. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
'Aurantiacum' með rauðgul blóm, 'Chamois' með bleikrauð blóm og ' Luteum' með sítrónugul blóm. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|