Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Cotoneaster microphyllus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   microphyllus
     
Höfundur   Wallich. ex Lindl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dvergmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   0,4-0,6 m (- 1 m)
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Sígrænn smárunni sem getur orðið enn breiðari en hár. Greinar eru ullhærðar. Greinarnar skjóta oft rótum ef þær komast í snertingu við mold.
     
Lýsing   Lauf allt að 0,8 sm, egglaga til öfugegglaga, glansandi djúpgræn, hvít-grá stinn- og langhærð neðan, en verða seinna hárlaus. Blómin eru allt að 8 mm breið, 1-4 í knippi, hvít, fræflar 15-20. Blómin eru tvíkynja og eru frævuð af flugum. Aldin allt að 7 mm, hnöttótt, fagurrauð, kjarnar/fræ 2-3.
     
Heimkynni   Himalaja.
     
Jarðvegur   Léttur jarðvegur, frjór, vel framræstur, getur vaxið í þungum, mögrum jarðvegi. Sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar   Er viðkvæmur fyrir hunangssvepp (Armillaria mellea).
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://www.pfaf.org
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í ker. Vindþolinn en þolir ekki sjávarseltu. Þolir vel loftmengun. Aldinin eru gott vetrarfóður fyrir margar fuglategundir. Laðar hunangsflugur að.
     
Reynsla   Aðaltegundin er ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.   Skrautleg planta með nokkur form sem hafa nafn. Flest formin eru mjög hægvaxta.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is