Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Cotoneaster hjelmqvistii
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   hjelmqvistii
     
Höfundur   Flinck & B. Hylmö
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kvistmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Cotoneaster horizontalis 'Coralle', Cotoneaster horizontalis 'Robustus', Cotoneaster rotundifolius hort.
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól og hálfskuggi
     
Blómlitur   Bleikur
     
Blómgunartími   Maí-júní
     
Hæð   1-2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, lágvaxinn runni. Greinar ögn uppréttar, mjög útstæðar. Hliðagreinar með einkennandi skipan á báðum hliðum. Ungar greinar rauðleitar. Cotoneaster hjelmqvistii hefur lengi verið ruglað við C. horizontalis í vestur Evrópu.
     
Lýsing   Lauf eru 0,8-2 sm löng, heil, gagnstæð, heilrend, bogformuð, íhvolf, glansandi með strjál hár. Blómskipunin með 1-4 blóm, blómin 4-7 sm breið, fölbleik með dekkri rákir, með 5 krónublöð. Aldin 6-8 mm löng, öfugegglaga til hnöttótt, appelsínurauð, glansandi. Mjög skrautlegur runni vegna reglulegra greina, kóralrauðra haustlaufa og aldina. Aldin rauð-appelsínugul, þroskast í ágúst-september.
     
Heimkynni   Kína (Gansu) (endimísk þar).
     
Jarðvegur   Sendinn, grýttur, meðalfrjór og meðal rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://en.hortipedia.com, http://www.zszp.pl
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í ker eða í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2002 og gróðursett í beð 2006, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.   Kvistmispill er eins og grófgert form af C. horizontalis og er oft selt sem yrkið 'Robusta' Samt sem áður er auðvelt að aðgreina tegundirnar því C hjelmqvistii er hærri en C. horizontalis og oft með uppréttari greinar, bogsveigðar og bugðóttar greinar og með smágreinar sem eru mun þéttari, (þess vegna ekki eins greinilega líkar dálki) og laufin eru alltaf stærri, næstum kringlótt, þynnri verða fyrr rauðleit að haustinu og falla fyrr.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is