Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Cotoneaster dammeri 'Eicholz’
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   dammeri
     
Höfundur   C.K. Schneid.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Eicholz’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Breiðumispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   Cotoneaster dammeri 'Oakwood’
     
Lífsform   Hálfsígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   0,2- 0,25 m
     
Vaxtarhraði   Hraðvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur runni, allt að 25 sm hár
     
Lýsing   Lauf minni en á aðaltegundinni eða 1,2-2 sm en aldinin stærri, skærrauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Vel framræstur, frjór jarðvegur, sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://www.hort.uconn.edu
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, haustsáning, græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í ker, í brekkur, í steinhæðir, í þyrpingar, sem þekjurunni og á veggi. Getur litið út fyrir að vera illa hirtur, þarf snyrtingu. Vindþolinn.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004. Meðalharðger. Þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Er álitin vera blendingur C. dammeri og C microphyllus v. cochleatus.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is