Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cotoneaster zabelii
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   zabelii
     
Höfundur   C.K. Schneid.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Rauðleitur eða hvítur með rauðleitri slikju
     
Blómgunartími   Maí-júní
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, 2-3 m hár, greinar grannar, fínlega bogsveigðar, þétthærðar.
     
Lýsing   Lauf egg-oddbaugótt, snubbótt, 1,5-3 sm löng, daufgræn ofan, gishærð, með grágula flókahæringu á neðra borði. Blómin 3-10 í hærðum, strjálblóma, blómskipunum. Krónublöðun upprétt, rauðleit eða hvít með rauðleitri slikju. Aldin skærrauð, kúlulaga, hærð, 7-8 mm í þvermál, með 2 kjarna/fræ.
     
Heimkynni   Kína
     
Jarðvegur   Léttur, frjór-meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   í blönduð runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2006. Er í sólreit 2011, lofar góðu.
     
Yrki og undirteg.   Cotoneaster zabelii v. miniatus Rehder & E.H. Wilson Laufin verða gul áður en þau falla af á haustin. Aldin smærri og enn skærappelsínugulari. Útbreiðsla: Kína (Hupeh).
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is