Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Crataegus macrosperma
Ættkvísl   Crataegus
     
Nafn   macrosperma
     
Höfundur   Ashe
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   5-8 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi tré, allt að 8 m hátt þyrnar 3 sm langir.
     
Lýsing   Lauf egglaga til oddbaugótt. Jaðrar með 5 breiðþríhyrnda flipa, sem eru hvasstenntir. Blóm 1,5 sm í þvermál, í blómfáum hálfsveipum. Fræflar 10, frjóhnappar rauðir. Aldin 0,5-1,5 sm, öfugegglaga til aflöng, rauð.
     
Heimkynni   N Ameríka (S Kanada suður til N Carolina, Tennesee).
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré, í beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Nánast engin, var sáð í Lystigarðinum 2000.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is