Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Crataegus pedicellata
Ættkvísl   Crataegus
     
Nafn   pedicellata
     
Höfundur   Sarg.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skarlatsþyrnir*
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni eða tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Maí
     
Hæð   4-7 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runni eða tré allt að 7 m hátt, greinar grannar, þyrnar beinir til ögn bognir, 3-5 sm langir.
     
Lýsing   Lauf breiðegglaga, breiðkeilulaga eða þverstýfð, 5-10 sm löng, gróf og oft tvísagtennt, með 4-5 stutt flipapör ofan við miðjuna, dökkgræn ofan, loðin, að lokum hárlaus á neðra borði. Blómskipunin hærð. Blómin 1,5-2 sm breið. Frjóhnappar bleikir. Aldin perulaga, glansandi, skarlatsrauð, holdið mjölkennt. Aldin koma í september.
     
Heimkynni   NA N-Ameríka (Connecticut to Ontario, Illinois og Pennsylvania. Hefur numið land á Bretlandseyjum).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, rakaheldinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   z5
     
Heimildir   7, http://www.pfaf.org
     
Fjölgun   Haustsáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré eða runnar, í beð, í þyrpingar. Þolir hvassviðri en ekki saltsteink frá hafi, getur þolað loftmengun. Aldin eru æt, þau eru borðuð fersk eða soðin, bragðið er mjög gott. Aldinin eru ögn mjölkennd en safarík og það er hægt að borða þau í miklu magni í eftirrétti. Hægt er að nota þau í bökur, niðursoðin og fl., líka er hægt að þurrka þau til notkunar seinna. Það eru allt að 5 fremur stór fræ í miðju aldininu, liggja oft mjög þétt saman svo þétt að það virðist sem eitt fræ þegar aldinið er borðað.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til eitt tré undir þessu nafni sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is