Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Cytisus ruthenicus
Ættkvísl   Cytisus
     
Nafn   ruthenicus
     
Höfundur   Wol.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lósópur
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae).
     
Samheiti   Chamaecytisus ruthenicus (Fischer ex Woloszczak) Klásk.
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Gullgulur
     
Blómgunartími   Maí-júní
     
Hæð   0,6-1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni 0,6-1 m hár. Greinar margar, ungir sprotar eru þaktir þéttri, hvítleitri dúnhæringu, hárin stutt og aðlæg.
     
Lýsing   Laufin eru þrífingruð, stakstæð, smálaufin með legg, oddbaugótt- lensulaga, dúnhærð, bogadregin í oddinn, með þyrni. Blómin eru gullgul, 3-5 saman í blaðöxlum, mynda einskonar öx. Bikar dúnhærður og með kjöl. Fáni hárlaus. Belgir 3-3,5 sm langir, þéttdúnhærðir.
     
Heimkynni   Pólland, Hvíta Rússland, Úkraína, Moldavía, Krímskagi.
     
Jarðvegur   Meðalrakur jarðvegur, sendinn, vel framræstur, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://en.hortipedia.com, http://molbiol.ru
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1983 og gróðursett var í beð 1984, kelur stundum mikið (k=0,5-4).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is