Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Euonymus oxyphyllus
Ættkvísl   Euonymus
     
Nafn   oxyphyllus
     
Höfundur   Miq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skarlatsbeinviður*
     
Ætt   Beinviðarætt (Celastraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól til hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænn með brúna slikju.
     
Blómgunartími   Síðla vors - snemmsumars.
     
Hæð   1-2,5 m (- 7 m)
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Runni eða lítið tré sem getur orðið allt að 7 m hátt í heimkynnum sínum, hárlaust, greinar sívalar.
     
Lýsing   Lauf 7 × 3-4 sm, egglaga-aflöng, langydd, fín-sagtennt, tennur með odd sem veit inn á við, mattgræn, með rauða slikju að haustinu, þunn, æðastrengir upphækkaðir á neðra borði. Skúfur strjálblóma allt að 15 sm, blómskipunarleggur grannur. Blómin fleiri en 10, 5-deild, 7 mm í þvermál, græn með brúna slikju. Blómin tvíkynja og eru frævuð af skordýrum. Aldin hnöttótt, með 4-5 rif, allt að 12 mm í þvermál, dökkrauð, fræ skarlatsrauð.
     
Heimkynni   A Asía (Kína, Japan, Kórea).
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, meðalþungur, malarborinn, vel framræstur jarðvegur, helst meðalrakur eða rakur, sýrustig skiptir ekki máli.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   = 1, http://www.pfaf.org
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæður runni, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 2000, önnur var gróðursett í beð 2007, hin er enn í sólreit 2013. Plantan er líklega eitruð. Mjög skrautleg planta, sem þolir frost allt að – 25°C. Vex hægt og myndar allstóran runna með aldrinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is