Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Diapensia lapponica
Ættkvísl   Diapensia
     
Nafn   lapponica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallabrúða
     
Ætt   Fjallabrúðuætt (Diapensiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn dvergrunni/hálfrunni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fjallabrúða
Vaxtarlag   Myndar þúfur með jarðlægum, skriðulum sprotum, blöðin eru í þéttum hvirfingum.
     
Lýsing   Laufin eru 0,75-1,25 x 0,25-0,75 sm, í hvirfingum, heilrend, spaðalaga-aflöng, snubbótt eða bogadregin í oddinn, grunnur mjókkar snögglega í stuttan lauflegg, leðurkennd, þykk, jaðrar dálítið niðurorpnir. Bikar allt að 0,75 sm, flipar skarast, snubbóttir, smátenntir. Krónupípan jafn löng og bikarinn, grænhvít innan, krónutunga allt að 2 sm í þvermál, flipar breiðir, snubbóttir, útstæðir, hvítir.
     
Heimkynni   Norðurhvel - pólhverf.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í þyrpingar, sem þekjuplanta, í náttúrlega garða.
     
Reynsla   Harðgerð planta, nokkuð algeng hátt til fjalla á norðurlandi.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fjallabrúða
Fjallabrúða
Fjallabrúða
Fjallabrúða
Fjallabrúða
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is