Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Rubus x stellarcticus 'Sofia´
Ættkvísl   Rubus
     
Nafn   x stellarcticus
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Sofia´
     
Höf.   Gunny Larsson, 1960-1970, Svíþjóð.
     
Íslenskt nafn   Sifjaklungur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rubus x stellarcticus 'Sophia'
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Rósrauður.
     
Blómgunartími   Júlí, ber í ágúst september.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Rubus x stellarcticus er blendingur bjarnarbers (R. arcticus) og stjörnuklungurs (R. stellarcticus). Fjölær jurt með skriðula jarðstöngla.
     
Lýsing   Blómin heldur stærri en á ilmklungri. Laufin þríflipótt eða sepótt. Blómin eru tvíkynja og frjóvga ekki sig sjálf. Það þarf að minnsta kosti tvö mismunandi yrki til að fá uppskeru. Berin eru mjög góð og með súrbragði en samt ekki eins og á bjarnarberi. 'Sofia' kemur með mikla uppskeru, bragðið er svipað og á stjörnuklungri.
     
Heimkynni   Blendingur / yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, rakaheldinn, súr.
     
Sjúkdómar   Sömu sjúkdómar og hindber og brómber verða fyrir.
     
Harka   1
     
Heimildir   HS, handbok.alterntiv.nu/@api/deki/pages/1802/pdf
     
Fjölgun   Skifting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, sem undirgróður, í steinhæðir, sem þekja til dæmis í lyngrósabeðum. Gott er að þekja plönturnar dálitlu af trjákurli eða laufi.
     
Reynsla   Er í Lystigarðinum. Harðgerð, fallegast er ef plantan fær að mynda breiður. Berin eru fullþroskuð þegar þau eru orðin mjúk og glansandi. Það er ekki hægt að fara eingöngu eftir litnum þegar þau eru tínd.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is