Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Sambucus racemosa ssp. kamtschatica
Ættkvísl   Sambucus
     
Nafn   racemosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   ssp. kamtschatica
     
Höfundur undirteg.   (E.L. Wolf.) Hultén
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðyllir
     
Ætt  
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi eða sól.
     
Blómlitur   Grænn-gulgrænn.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   - 3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sumargrænir runnar eða tré allt að 8 m há. Smálauf stærri en á aðaltegundinni, grófsagtennt, oftast dúnhærð. með lengri útstæða, stífa dúnhæringu allt að 1 mm löng. Blómin í litlum smá-mjúkhærðum skúfum. Aldin og fræ nokkru stærri en á aðaltegundinn.
     
Lýsing   Laufin eru samsett úr 5-7 smálaufum, allt að 16 sm löng, lensulag til mjóegglaga og óreglulega sagtennt á jöðrunum Vond lykt er af laufinu ef það er marið. Blómskipunin er í keilulaga með puntlíka klasa. Blómknúppar eru bleikir meðan þeir eru lokaðir, útsprungin blóm eru hvít, rjómalit eða gulleit. Hvert blóm er með baksveigð krónublöð og stjörnulaga með hvíta fræfla og gula frjóhnappa. Blómin eru tvíkynja, ilmsæt. Aldinin eru skærrauð, stundum purpurarauð með 3-5 fræ.
     
Heimkynni   Evrópa til V Asía.
     
Jarðvegur   Sendinn, rakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   = 1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Sambucus+racemosa+kamtschatica, en.wikipedia.org/wiki/Sambucus-racemosa
     
Fjölgun   Sáning að haustinu í sólreit. Geymt fræ er betra að setja í forkælingu í 2 mánuði fyrir sáningu. Síðsumargræðlingar með hæl. Skifting þegar plantan er í dvala.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð. Þolir allt að - 25°C. Þolir rok en ekki saltúða af hafi. Getur þolað loftmengum.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni sem var sáð til 1983 og gróðursettar í beð 1985, báðar kala dálítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is