Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Sambucus sieboldiana
Ættkvísl   Sambucus
     
Nafn   sieboldiana
     
Höfundur   (Miq.) Gräbn.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japansyllir
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulhvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   - 6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runni eða lítið tré, allt að 6 m hátt. Ungar greinar brúnar, hárlausar.
     
Lýsing   Lauf allt að 30 sm, oftast með 7 til 11 smálauf. Smálaufin 7-20 sm, aflöng til aflöng-lensulaga, mjókka hægt, þétt og smá-sagtennt, ljósgræn, hárlaus. Blómskúfur allt að 7x5 sm, egglaga, endastæð, blómin gulhvít, allt að 4 mm í þvermál. Aldin hnöttótt eða oddvala, 4 mm í þvermál, skarlatsrauð, sjaldan gul eða appelsínugul.
     
Heimkynni   Japan, Kína.
     
Jarðvegur   Sendinn, frjór, djúpur, vel fram ræstur, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1984.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is