Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Scilla peruviana
Ættkvísl   Scilla
     
Nafn   peruviana
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Inkastjörnulilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær laukur. (8)
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpfjólublár.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Laukur 6-8 sm í þvermál, egglaga, laukhýðið með ullarkennt ytra lag. Lauf 9-15 að tölu, stundum færri, 40-60 × 1-4 sm, bandlaga til lensulaga í þéttum hvirfingum, stundum randhærð.
     
Lýsing   Blómstönglar stakir, sjaldan 2 saman, 15-25 sm, stinnir. Blóm 40-100 í breiðkeilulaga, 5-20 sm löngum klasa. Neðri stoðblöðin 3-8 sm, sýllaga, pappírskennd. Neðri blómleggir 3-5 sm, grænleitir lengjast og verða 6-10 sm þegar aldinið hefur þroskast. Blómhlífarblöð 8-15 mm, oddbaugótt, djúpfjólublá eða hvít. Fræflar lensulaga oddbaugóttir, fölbláir, frjóhnappar gulir. Eggleg næstum hnúðótt. Hýði egglaga, langydd, með 3 eða 4 fræ í hólfi.
     
Heimkynni   SV Evrópa, NV Afríka.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór moldarjarðvegur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   = 2
     
Fjölgun   Hliðarlaukar, sáning, laukar lagðir í september á 8-10 sm dýpi.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í breiður, í blómaengi, í grasflatir.
     
Reynsla   Harðgerð, hentar síður í steinhæðir og beð vegna þess hve plantan beiðist hratt út. Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is