Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Salix serissima
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   serissima
     
Höfundur   (Bailey ex Arthur) Fernald
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Flóavíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   Salix lucida Muhlenberg var. serissima L. H. Bailey.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   1-5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, 1-5 m hár. Greinar oftast sveigjanlegar við grunninn, stundum stökkar, gulbrúnar, rauðbrúnar eða grábrúnar, hárlausar, dálítið gljáandi eða mattar. Ársprotar gulbrúnir eða rauðbrúnir, hárlausir, ögn eða mjög mikið gljáandi.
     
Lýsing   Axlablöð engin eða mjög smá. Laufleggur með grunna eð djúpa gróp á efra borði, 3-13 mm, með par af kúlulaga kirtlum efst eða kirtla alla leiðina, hárlaus á efraborði, stærstu laufblöðkurnar með loftaugu neðra borði eða dálítið af loftaugum á báðum borðum, mjóaflöng, mjög mjóoddbaugótt, oddbaugótt, lensulaga eða mjó egglaga, 43-100 x 9-33 mm, 2,4-6 sinnum lengri en þær eru breiðar. Grunnur bogadreginn eða fleyglaga, jaðrar flatir, sagtenntir, oddur langyddur, rófuyddur eða hvassyddur. Neðraborð oftast ekki bláleitt, en stundum lítið eitt bláleit (líta út fyrir að vera ljósgræn), ögn gljáandi, hárlaus, mjög mikið gljáandi á efra orði, hárlaus, næstu lauf smásagtennt eða heilrend, ung lauf rauðleit eða gulgræn, hárlaus á neðra borði. Karlreklar (kröftugir), 25-53 x 12-16 mm, greinar með blómum 5-14 mm, kvenblóm (með aldin að haustinu, oft langæ) meðalþétt- til strjálblóma, kröftug eða kúlulaga, 17-42(-65 sem aldin) x 11-22 mm, blómgreinar 5-32(-65 með aldin) mm, stoðblöð blóma (stundum græn-móleit) 1,2-4 mm, hvassydd, bogadregin eða þverstýfð, kirtiltennt, með aflanga eða egglaga hunangskirtla, meðal þétthærð á neðra borði, hárin bein eða bylgjuð. Karlblóm með hunangskirtla 0,5-1,1 mm, á efra borði eru hunagskirtlar aflangir eða egglaga, 0,4-1,1 mm, hunangskirtlar ekki samvaxnir eða samvaxnir og bollalaga, fræflar 3-9, frjóþræðir ósamvaxnir eða samvaxnir neðst, hár á neðri helmingi eða allra neðst. Fræflar oddvala eða stutt-sívalir, 0,5-0,7 mm. Hunangskirtlar kvenblóma á efra borði, egglaga, aflöng eða flöskulaga, 0,3-1,1 mm, styttri en leggur egglegsins, leggur egglegsins 1,2-2,4 mm, eggleg perulaga eða öfugkylfulaga, trjóna ögn útblásin neðst, mjókkar snögglega að stílnum. Eggbú 12-16 í hverju egglegi, stílar samvaxnir, 0,3-1 mm. Fræni flöt, ekki nöbbótt á ytra borði, með bogadreginn enda eða mjó-sívöl, 0,4-0,7 mm. Fræhýði 7-12 mm.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Malarborinn, lífefnaríkur, blautur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=1&taxon-id=242445867
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar. Fræi er sáð um leið og það er fullþroska.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð runna- eða trjábeð.
     
Reynsla   Í tengslum við Lystigarðinn voru til tvær plöntur (A690(2)), kólu mikið framan af, önnur er dauð en hin kelur ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is