Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Salix ovalifolia v. arctolitoralis
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   ovalifolia
     
Höfundur   Trautv.
     
Ssp./var   v. arctolitoralis
     
Höfundur undirteg.   (Hultén) Argus
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Baugavíðir
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   S. arctolitoralis Hultén
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   2-5 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur runni með langar, skríðandi, ljósbrúnar greinar.
     
Lýsing   Laufin gulgræn á efra borði, ljósari á neðra borði. Laufleggir 4-16 mm. Laufblaðkan mjó- breið oddbaugaótt til öfugegglaga, 25-46 x 10-20 mm, 1,6-3,4 sinnum lengrin en hún er breið, grunnur bogadreginn, oddur snubbóttur, yddur, odddreginn eða bogadreginn, neðra borð hárlaust, lítið ett dúnhært eða með löng hár. Reklar á laufóttum legg, stoðblöð smá, ljósleit til purpuralit, randhærð, styttri en eða jafn löng og blómleggurinn. Karlreklar 23-46 x 8-11 mm, blómgreinar 3-24 mm. kvenreklar kröftugir til hálf-kúlulaga, 28-48 x 10-28 mm, blómgreinar 5-1-22 mm. Hunangskirtill karlblóma á ytra borði 0,8-1,1 mm, hunangskirtill á efra borði 0,7-1,1 mm, hunangskirtlar samvaxnir og bollalaga. Hunangskirtill kvenblóma á ytra borði enginn, hunangskirtill á efra borði egglaga, 0,5, -1,9 mm. Leggur egglegs 0,2-1,4 mm, eggleg oft bláleitt, hárlaust. Fræhýði 5,2-9,6 mm, hárlaus, grænleit eða purpuraleit.&
     
Heimkynni   Kanada, Yukon, Alaska.
     
Jarðvegur   Lífefnaríkur, meðalrakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   23, www.gardening.eu/arc/plants/Masts/Salix-arctolitoralis-Hultén/61392/index-a.asp, https://books.google.is/books?id=I-KRof-0pX4C&pg=PA77&lpg=PA77&dq=salix+arctolitoralis&source= ....,
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Heimskautaplanta, vex oftast með ströndum fram í sandöldum og engjum á túndrunni í 10-30 m h.y.s.
     
Reynsla   Í tengslum við Lystigarðinn er til ein planta undir þessu nafni (A-146), hefur kalið lítið eitt að minnsta kosti í byrjun.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is