Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
|
Ættkvísl |
|
Erigeron |
|
|
|
Nafn |
|
compositus |
|
|
|
Höfundur |
|
Pursh. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Þvælukobbi |
|
|
|
Ætt |
|
Körfublómaætt (Asteraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur / gulur hvirfill. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
20-30 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Langlífur fjölæringur, sem vex upp að grófum jarðstöngli. Blómstönglar næstum lauflausir, allt að 25 sm háir en oft lægri. |
|
|
|
Lýsing |
|
Flest laufin eru grunnlauf, stilklöng, ljósgræn, kirtilhærð, oftast tvisvar þrískipt í mjóa striklaga flipa. Körfur eru stakar, meðalstórar eða 3-4 sm í þvermál. Hvirfillinn 8-20 mm í þvermál, reifablöð purpuralit í endann. Tungur 20-60, hvítar, bleikar eða bláar, allt að 1,2 sm × 2 mm. Svifkrans einfaldur úr 12-20 þornhárum. Aldin 2-tauga, hærð.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
Alaska, N Ameríka, Grænland, Labrador. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, framræstur, sendinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, í fjölæringabeð, til afskurðar. |
|
|
|
Reynsla |
|
Harðgerður með afbrigðum, en fágætur, þó í ræktun í grasagarðinum og hjá áhugafólki, töluvert breytilegur í útliti. Hefur þroskað fræ í Lystigarðinum af og til. Hefur reynst skammlífur í Lystigarðinum. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Erigeron compositus v. glabratus Macoun. Lauf 2-3 þrískipt, flipótt, bandlaga-aflöng.
NV N-Ameríka.
Erigeron compositus v. discoideus A. Gra.y Lauf 1-þrískipt.
'Albus' er með hvít blóm. (Z5 RHS)
'Rocky' Finnst ekki í bókum.
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|