Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Euphorbia cyparissias
Ættkvísl   Euphorbia
     
Nafn   cyparissias
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sedrusmjólk
     
Ætt   Mjólkurjurtaætt (Euphorbiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulgræn háblöð.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   20-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 40 sm há. Stönglar greinast frá skriðulum jarðstönglum.
     
Lýsing   Stöngullauf bandlaga, allt að 40 x 3 mm, heilrend, snubbótt. Geislalauf 9-11, bandlaga-aflöng, lauf smágeisla (háblöð) tígullaga til hálfkringlótt, allt að 11 mm, gulgræn, verða lilla til rauðmenguð, kirtlar hálfmánalaga, gulir. Aldin djúp 3-flipótt, allt að 4 mm í þvermál, kjölur kornóttur, fræin egglaga, slétt, grá.
     
Heimkynni   V & M Evrópa
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, magur, þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting. Ath!! Mjólkursafinn mjög eitraður.
     
Notkun/nytjar   Sem þekjuplanta þar sem hún er skriðul, af sumum talin mjög varasöm í garða, en það er lítið mál að uppræta plöntuna.
     
Reynsla   Harðgerð jurt.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is