Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Galium odoratum
Ættkvísl   Galium
     
Nafn   odoratum
     
Höfundur   (L.) Scop.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Möðrubróðir (Ilmmaðra)
     
Ætt   Möðruætt (Rubiaceae).
     
Samheiti   Asperula odorata
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi (sól).
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   10-40 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Möðrubróðir (Ilmmaðra)
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 45 sm. Stönglar 4-hyrndir, uppréttir, dúnhærðir á stöngulliðum, jarðrenglur skríða, greinóttar, hálf-neðanjarðar, þurrkaðir sprota eru með heylykt.
     
Lýsing   Lauf allt 50 x 14 mm, 6-9 kransar, oddbaugótt til lensulaga eða öfuglensulaga, hvassydd til ydd, jaðrar snarpir og randhærðir til broddóttir, stinnir, hárlaus. Blómin hvít í strjálum, endastæðum sveip-kvíslskúf með blómstöngul. Krónan allt að 7 mm, trektlaga, krónupípan dúnhærð innan, flipar útstæðir, baksveigðir, aflangir, snubbóttir. Aldin allt að 3 mm, broddhærð. blómin lítil í toppum efst á blómstönglum, nær bikarlaus, krónublöð fjögur blöðin lensulaga í mörgum krönsum upp ferkantaða stönglana, heilrend
     
Heimkynni   Evrasía, N Afríka.
     
Jarðvegur   Vel rakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Þekju, undirgróður, undir tré og runna (svo og milli burkna og víðar). Er algeng skógarbotnsplanta í Evrópu.
     
Reynsla   Harðgerð planta sem gefur frá sér sætan ilm þegar hún er þurrkuð. Ekkert sérlega eftirsóknarverð garðplanta fremur en gulmaðra (Galium verum) og krossmaðra (Galium boreale,) en þær má auðvitað flytja á klappir eða í blómaengið við sumarbústaðinn.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Möðrubróðir (Ilmmaðra)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is