Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Clematis alpina ssp. sibirica
Ættkvísl   Clematis
     
Nafn   alpina
     
Höfundur   (L.) Mill.
     
Ssp./var   ssp. sibirica
     
Höfundur undirteg.   (L.) Kuntze
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Mjallarbergsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
     
Samheiti   Atragene alpina var. sibirica (L.) Regel & Tiling; Atragene alpina subsp. sibirica (L.) Á. Löve & D. Löve; Atragene sibirica L.; Atragene speciosa Weinm.; Atragene speciosa subsp. saxatilis Kuvaev & Sonnikova; Atragene tianschanica Pavlov; Clematis alpina var. alba Davis; Clematis alpina var. altaica Kuntze; Clematis alpina var. sibirica (L.) C.K.Schneid.; Clematis alpina var. sibirica (L.) Kuntze; Clematis sibirica (L.) Mill.; Clematis sibirica var. tianschanica (Pavlov) M.Johnson; Clematis sibirica var. tianzhuensis M.S.Yan & K.Sun; Clematis turkestanica M.Johnson;
     
Lífsform   Klifurrunni (vafrunni)
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Síðla vors
     
Hæð   2-4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Klifurrunni, enn harðgerðari og kröftugri en aðaltegundin.
     
Lýsing   Klifurplanta sem vex frá trjákenndum stofnum/greinum og verður 0,3-4 m há. Blómhlífin regluleg, hægt að skipta í fleiri en tvo eins hluta, bjöllulaga, fölrjómalit gulhvít, sjaldan með bláa slikju, 25-40 mm breið. Blómhlífarblöð 4, oddbaugótt-lensulaga, langoddregin, ytra borð þeirra glansandi með mjúk hár. Fræflar margir, þeir ytri eins og króna, spaðalaga, fjölmargir fræflar. Frævurnar eru margar, aðskildar. Blómin stök, axlastæð, drúpandi. Lauf gagnstæð, legglöng. Smálauf gróftenntara og óreglulegar sagtennt, blaðkan tví-þrískipt. Smálauf egglaga, sagtennt, fínhærð á neðra borði. Smáhnetan með fjaðurlíkan, um 3 mm langan odd, oft margar saman.
     
Heimkynni   N Noregur og Finnland austur í A Síberíu og M Úralfjöll og Mansjúríu.
     
Jarðvegur   Frjór, dálítið rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   z3
     
Heimildir   1,http://www.luonoportti.com
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar
     
Notkun/nytjar   Notuð sem klifurplanta á veggi og skjólgrindur.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær gamlar plöntur sem vaxa vel og blómstra mikið.
     
Yrki og undirteg.   Yrki t.d. 'Gravetye' stór mjólkurgul og 'White Moth' hvít hálffyllt.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is