Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Saxifraga x arendsii 'Schöne von Ronsdorf'
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   x arendsii
     
Höfundur   Engl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Schöne von Ronsdorf'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Roðasteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Skærrósbleikur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   'Schöne von Ronsdorf'. Skærrósbleik blóm á 10-12 sm stönglum, upplitast minna en hin yrkin með aldrinum.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Jafnrakur, ekki of frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í kanta, í breiður.
     
Reynsla  
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is