Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Saxifraga rivularis
Ættkvísl   Saxifraga
     
Nafn   rivularis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Lækjasteinbrjótur
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, raklendi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní- júlí.
     
Hæð   3-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Lækjasteinbrjótur
Vaxtarlag   Stönglar mynda þéttan topp eða þétta þúfu. Æxliknappar í blaööxlum grunnlauf fara að vaxa fyrir blómgun og mynda grannar renglur, sem mynda nýjar plöntur á endum renglanna. Blöðkur grunnlaufa oftast 0,5-1,2 x 0,9-1,7 sm, hálfkringlótt eða nýrlaga, skipt í 3-7 breið-egglaga, snubbótta flipa. Laufleggurinn er 2-6 x lengri en blaðkan, með slíður neðst.
     
Lýsing   Blómstöngull 3-15 sm, oftast með eitt blóm, en greinist stundum frá miðju og ber 2-5 blóm á löngum legg. Krónublöð 4-5 mm, öfugegglaga, hvít, stundum með hvíta slikju. Eggleg að minnsta kosti 1/3 yfirsætið.
     
Heimkynni   Pólhverf, V Norður-Ameríka.
     
Jarðvegur   Magur, mjög blautur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, norðan í móti.
     
Reynsla   Íslensk eintök hafa lifað í Lystigarðinum í allmörg ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lækjasteinbrjótur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is