Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Mahonia repens
Ættkvísl   Mahonia
     
Nafn   repens
     
Höfundur   G. Don.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skriðbrydda
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae).
     
Samheiti   M. nana. Berberis nana. B. repens.
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Djúpgulur.
     
Blómgunartími   Síðla vors.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta,
     
 
Vaxtarlag   Hálf-jarðlægur runni með rótarskotum, allt að 50 sm hár.
     
Lýsing   Laufin allt að 25 sm, smálauf oftast 5, egglaga, misstór, grunnur næstum hjartalaga, oddur snubbóttur eða mjög snöggyddur, mattgræn ofan, nöbbótt neðan, blágræn í fyrstu, með 9-18 þyrnitennur á hvorri hlið. Blómin ilmandi, djúpgul í endastæðum klasa allt að 8 sm löngum í allt að 6 knippum. Aldin allt að 9 mm í þvermál blágrænblá, enginn stíll.
     
Heimkynni   NV Ameríka.
     
Jarðvegur   Léttur jarðvegur, rakur eða fremur þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, www.pfaf.org/user/plant.aspx?latinname=Mahonia+repens
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í kanta, sem þekjuplanta, sem undirgróður.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 2001, kelur stundum talsvert, til er önnur planta sem sáð var til 2010, er í sólreit.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is