Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Chaerophyllum hirsutum
Ættkvísl   Chaerophyllum
     
Nafn   hirsutum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Burknasveipblaðka
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, stöngullinn allt að 120 sm hár, hærður. Lauf 2-3 fjaðurskipt, fliparnir skarast dálítið, egglaga eða hjartalaga, hærð eða næstum hárlaus, tennt.
     
Lýsing   Sveipir með misstóra smásveipblöð. Blómin hvít, stöku sinnum með bleika slikju. Krónulöðin randhærð, stílar næstum uppréttir. Aldin mjó egglaga-aflöng, allt að 12 mm.
     
Heimkynni   Evrópa.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinu er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2001 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.   Yrkið 'Roseum' er með djúpbleik blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is