Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Heracleum minimum
Ættkvísl   Heracleum
     
Nafn   minimum
     
Höfundur   Lamarck
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Smáhvönn
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur til bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt sem myndar hnausa eða smáþyrpingar. Stönglar eru 20-30 sm háir. Lauf 2-fjaðurskipt til (stundum) 2 x skipt í þrennt, hver hluti skiptist aftur, hárlaus. Engin stoðblöð.
     
Lýsing   Sveipir allt að 6 sm eða breiðari. Geislar 3-6. Reifablöð oftast engin. Krónublöð hvít eða bleik. Aldin 8-10 x 6-8,5 mm, breiðoddbaugótt til næstum hnöttótt.
     
Heimkynni   SA Frakkland.
     
Jarðvegur   Malarborinn, lífefnaríkur, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 2
     
Fjölgun   Sáning að vorinu eða skipting að vorinu.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.   'Roseum' er með bleik blóm.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is