Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Hacquetia epipactis
Ættkvísl   Hacquetia
     
Nafn   epipactis
     
Höfundur   (Scop.) DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skógarslæða
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   - 7 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skógarslæða
Vaxtarlag   Smávaxin fjölær fjallajurt, sem myndar hnaus, allt að 7 sm há, oftast lægri.
     
Lýsing   Laufin hvirfingarlauf, handskipt, hálf-kringlótt að ummáli, smaragdsgræn, hárlaus, separ 3, fleyglaga, 2-3-flipótt. Blómskipunin með axlegg, jafnlöng eða lengri en laufin. Sveipir einfaldir, leggstuttir, með 5-7 öfugegglaga, skærgrænum, stoðblöðum, sem eru allt að 2 sm löng, lengri en blómin og koma fyrir sjónir sem stakt blóm með græn krónublöð og með skjöld af gulum fræflum blómin gul.
     
Heimkynni   Evrópa.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Auðfjölgað með skiptingu.
     
Notkun/nytjar   Við tjarnir og læki, sem undirgróður, undir tré og runna.
     
Reynsla   Þrífst bærilega hérlendis (H.Sig.).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skógarslæða
Skógarslæða
Skógarslæða
Skógarslæða
Skógarslæða
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is