Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Allium victorialis
Ættkvísl   Allium
     
Nafn   victorialis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sigurlaukur
     
Ætt   Liliaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær laukjurt
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   gulhvítur
     
Blómgunartími   júní-júlí
     
Hæð   0.3-0.6m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Sigurlaukur
Vaxtarlag   stuttur gildur jarðstöngull m/lög af brúnum blaðtrefjum
     
Lýsing   blómin fremur lítil í meðalstórum kúlulaga sveip blöð breið, lensulagaa en ekki eins oddmjó eins og á Bjarnarlauk
     
Heimkynni   S Evrópa, N Asía, Aleutian eyjar
     
Jarðvegur   rakur, frjór
     
Sjúkdómar   engir
     
Harka   7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   sáning, skipting
     
Notkun/nytjar   við tjarnir, undirgróður undir tré og runna
     
Reynsla   Harðger, vex í náttúrunni á raklendum engjum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Sigurlaukur
Sigurlaukur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is