Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Heuchera cylindrica
Ættkvísl   Heuchera
     
Nafn   cylindrica
     
Höfundur   Douglas ex Hook.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Súluroði
     
Ætt   Steinbrjótsætt (Saxifragaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Rjómalit með grænu eða rauðu.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   60-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Súluroði
Vaxtarlag   Þýfð jurt með upprétta stöngla.
     
Lýsing   Grunnlauf breið-oddbaugótt til bogadregin, lengri en þau eru breið, grunnflipótt, tennt, laufleggur kirtilhærður eða glansandi. Blómöx 10-15 sm, stöngullinn lauflaus. Blómin oftast ekki með krónublöð. Bikar bjöllulaga, fölgul,græn, rjómalit eða bleik. Fræflar standa ekki út úr blóminu.
     
Heimkynni   NV N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakur.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, https://www.pnwflowers.com/flower/heuchera-cylindrica
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í beð, sem þekjugróður.
     
Reynsla   Fer vel með sígrænum runnum, burknum og blaðstórum plöntum til að milda sterka blómliti og fleira.
     
Yrki og undirteg.   var. alpina er kirtilhærð á laufum og neðst á stönglinum. var. glabella er hárlaus og eki með kirtla. var. cylindrica, er algengasta afbrigðið, með hár og kirtla á laufleggjunum og neðast á stönglunum, stór stöðblöð, þykk lauf. Heuchera grossulariifolia er lík en laufin eru alltaf styttri en þau eru breið, styttri en blómstöngullinn, blómin eru með hvít krónublöð.
     
Útbreiðsla  
     
Súluroði
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is