Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Juniperus communis v. nana "Sandvatn"
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   communis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   v. nana
     
Höfundur undirteg.   (Willd.) Baumg.
     
Yrki form   "Sandvatn"
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Einir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni eða tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit.
     
Blómgunartími   Apríl-júní.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, fremur hár af íslenskum eini að vera.
     
Lýsing  
     
Heimkynni   Náttúrulegt afbrigði, íslenskt.
     
Jarðvegur   Sendinn, léttur, vel framræstur, fremur magur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   # 1
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, síðsumargræðlingar í svalan reit.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í þyrpingar og víðar.
     
Reynsla   Er íslenskt kvæmi eða afbrigði, aðkeypt 1986, sem þrífst mjög vel.
     
Yrki og undirteg.   Þetta kvæmi er fundið við Sandvatn í Mývatnssveit í Suður-Þingeyjarsýslu.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is