Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Juniperus horizontalis
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   horizontalis
     
Höfundur   Moench.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skriðeinir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae)
     
Samheiti   J. sabina v. prostrata (Michx.) Loud., J. sabina v. humilis Hook.)
     
Lífsform   Sígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit
     
Blómgunartími  
     
Hæð   30-50 sm
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur runni með langar aðalgreinar og margar þéttstæðar uppsveigðar stuttar hliðargreinar, myndar þéttar þúfur.
     
Lýsing   Þær greinar sem liggja á jörðum eru víðskriðular, ungar greinar eru mjög margar, stuttar og grófar. Barr plantna í ræktun eru yfirleitt aðeins nálar, oft 3 saman, blágrænar til stálgrænar, 2-6 mm langar, dálítið uppstæðar. Hreisturbarr mjó-oddbaugótt, hvassydd, oddar ekki aðlægir, kúpt á bakhlið og með kirtil. Aldin kúlulaga, blásvört, dálítið bládöggvuð, 7-9 mm breið, en koma ekki fyrir á garðplöntum.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Þurr-meðalþurr, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1,7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í steinhæðir og víðar.
     
Reynsla   Ekki til í Lystigarðinum. Talinn meðalharðgerður. Þarf vetrarskýlingu á unga aldri.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Vex til fjalla og á sandströndum vatnanna miklu.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is