Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Larix sibirica "Raivola"
Ættkvísl   Larix
     
Nafn   sibirica
     
Höfundur   Ledeb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   "Raivola"
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Síberíulerki (rússalerki)
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi barrtré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gul, kvenblóm græn, rauðleit eða purpura.
     
Blómgunartími   Síðla vors.
     
Hæð   20-30 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Sjá aðaltegund.
     
Lýsing   Sjá aðaltegund.
     
Heimkynni   Staðarafbrigði frá Arkangelsk Rússlandi.
     
Jarðvegur   Meðalþurr, magur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   1
     
Heimildir   = 1, http:en.wikipedia.org
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í limgerði, í skógrækt, sem stakstætt tré, í þyrpingar.
     
Reynsla   Mest ræktaða staðbrigði af öllu síberíulerki hérlendis.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is