Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Leucanthemum x superbum
Ættkvísl   Leucanthemum
     
Nafn   x superbum
     
Höfundur   (J. Ingram) Bergmans ex Kent.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Prestabrá
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti   Chrysantemum maximum
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur / gul hvirfingarblóm.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   30-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Prestabrá
Vaxtarlag   Fjölær jurt, blendingur af L. maximum og L. lacustre. Stönglar uppréttir, hárlausir, allt að 100 sm háir eða hærri.
     
Lýsing   Laufin tennt, neðri laufin allt að 30 sm, öfuglensulaga, með legg, efri laufin lensulaga, legglaus. Körfur allt að10 sm í þvermál, stakar, geislar hreinhvítir, hvirfingarblóm gul.
     
Heimkynni   Garðauppruni.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning (sumar sortir nær fræekta). Þarf að skipta 3-4 hvert ár.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Harðgerð-meðalharðgerð planta, nær að blómstra á bestu stöðum norðanlands.
     
Yrki og undirteg.   'Silberprinzesschen' 30sm, 'Snow Lady' 20 sm, 'Polaris' 80 sm, 'Beethoven' 80 sm, 'Junischnee' hálfyllt 90 sm, 'Wirral Supreme' með þéttfylltar körfur, 90 sm og fleiri.
     
Útbreiðsla   Myndin: L. x superbum 'Snow Lady' 20 sm.
     
Prestabrá
Prestabrá
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is