Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Ligularia wilsoniana
Ættkvísl   Ligularia
     
Nafn   wilsoniana
     
Höfundur   (Hemsl.) Greenman
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skessuskjöldur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   120-200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skessuskjöldur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 200 sm há.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 50-25 sm, nýrlaga-hjartalaga, hvasstennt, djúpgræn, laufleggur sívalur, holur. Körfur um 2,5 sm í þvermál, margar í löngum klasa, blómskipunarleggur með stoðblöð, stoðblöðin smá, bandlaga. Geislablóm 6-8, gul. Aldin sívöl. Svifhárakrans gráleitur, tæplega lengri en aldinin.
     
Heimkynni   M Kína.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum, við tjarnir og læki, sem undirgróður.
     
Reynsla   Harðgerð, sómir sér mjög vel nálægt tjörnum eða lækjum. Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skessuskjöldur
Skessuskjöldur
Skessuskjöldur
Skessuskjöldur
Skessuskjöldur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is