Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Lilium 'Star Gazer'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Star Gazer'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Lilium 'Stargazer'
     
Lífsform   Fjölæringur og laukjurt. Asíublendingur (Asiatic hybrid),Mid Century blendingur.
     
Kjörlendi   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum.
     
Blómlitur   Rauðrófupurpura –bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   60-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Blómin eru trektlaga til skállaga, ilma, vita upp á við, rauðrófupurpura –bleikpurpura með smáar, rauðbrúnar doppur í miðjunni. Stönglar eru 60-90 sm háir.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Vel framræstur, frjór og blandaður lífrænum efnum.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, Upplýsingar af umbúðum, http://www.davesgardens.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun   Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum. Myndar ekki fræ, blómin ófrjó eða að fræ slær til baka eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum en ekki fast upp við suðurvegg, þar verður of þurrt og heitt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla.Laukarnir eru gróðursettir 15 sm djúpt og með 40-45 sm millibili. Plantað í beð og beðkanta eða í ker t.d. á svalir. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Góð til afskurðar.
     
Reynsla   Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1992, hefur stundum rétt tórt, kom aðeins með eitt blóm 2010, hefur myndað nokkra nýja stöngla síðan 1992. Þarf meiri áburð og vökvun.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is