Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Luzula pilosa
Ættkvísl   Luzula
     
Nafn   pilosa
     
Höfundur   (L.) Willd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skóghæra
     
Ætt   Sefætt (Juncaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær, grasleit tegund.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljósgrænn.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 35 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær, grasleit tegund, allt að 35 sm, myndar þúfur.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 10 mm breið, flöt, lítið eitt þétthærð. Blómskipunin með mislangar, útstæðar greinar, niðurstæðar þegar fræin eru þroskuð. Blómhlífarblöðin næstum jafnstór, brún með himnujaðar. Frjóhnappar lengri en frjóþræðirnir. Hýði allt að 4,5 mm, perulaga, ljósgræn. Fræ allt að 1,8 mm, fölbrún, grunnsneplar allt að 1,5 mm, krókboginn.
     
Heimkynni   Evrópa.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í beð, í blómaengi, við tjarnir og læki.
     
Reynsla   Hefur lifað lengi í Lystigarðinum, þrífst vel og sáir sér.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is