Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Melica altissima 'Atropurpurea'
Ættkvísl   Melica
     
Nafn   altissima
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Atropurpurea'
     
Höf.   hort.
     
Íslenskt nafn   Skógax
     
Ætt   Grasaætt (Poaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölært gras.
     
Kjörlendi   Sól eða dálítill skuggi.
     
Blómlitur   Ljóspurpura.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skógax
Vaxtarlag   Allt að 150 sm hátt fjölært gras.
     
Lýsing   Með skriðula jarðstöngla. Laufblaðkan hvassydd, allt að 22,5 x 1 sm, snörp, slíðurhimna allt að 5 mm. Puntur uppréttur, stinnur,þéttur, slitróttur við grunninn, allt að 25 x 2,5 sm, smáöx aflöng, allt að 1 sm, frjó blóm 2, neðri blómögn á frjóum blómum hvassydd, fín örðótt.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Sendinn-leirkenndur, miðlungi rakur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í beð með trjám og runnum.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skógax
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is