Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Mimulus lewisii
Ættkvísl   Mimulus
     
Nafn   lewisii
     
Höfundur   Pursh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rósatrúður
     
Ætt   Scrophulariaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   dökkrósrauður
     
Blómgunartími   júlí-sept.
     
Hæð   0.3-0.8m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rósatrúður
Vaxtarlag   myndar allnokkrar breiður Þar sem það þrífst vel
     
Lýsing   blómin langstilkuð með næstum jafnstóra efri og neðri vör blöðin fremur Þykk, mattgræn, hærð, lensulaga, fíntennt
     
Heimkynni   N Ameríka (Alaska - Kalifornía)
     
Jarðvegur   meðalrakur, frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting að vori, sáning (sjálfsáning alg.) græðlingar að vori
     
Notkun   kanta, hleðslur, undirgróður, beð
     
Nytjar   Meðalharðgert-harðgert en getur átt Það til að deyja alveg út eftir nokkur ár
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Rósatrúður
Rósatrúður
Rósatrúður
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is