Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Mimulus lewisii
Ættkvísl   Mimulus
     
Nafn   lewisii
     
Höfundur   Pursh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rósatrúður
     
Ætt   Grímublómaætt (Scrophulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Dökkrósrauður.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   30-80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rósatrúður
Vaxtarlag   Fjölær jurt, kirtildúnhærð. Stönglar 30-90 sm eða hærri, mikið greinir, trékenndir, dúnhærðir.
     
Lýsing   Laufin 3-7 sm, aflöng-oddbaugótt, með smáar bylgjutennur, neðri laufin með ógreinilegan legg, önnur mjókka að grunni eða eru greipfætt, æðastrengir 3-5, liggja langsum. Blómleggir sterklegir, 3-10 sm. Bikar með ferköntuð rif, 2-3 sm, flipar næstum jafnstórir, þríhyrndir með týtu, 4-6 mm. Króna 2-5 sm, flipar dálítið mismunandi, rauðrófupurpura eða sjaldan hvít, gin bjöllulaga með 2 gula hárhryggi að framan og dumbrauða bletti, frjóhnappar kögraðir, fræni ögn randhært. Fræhýði 14 mm, klofnar frá toppnum alveg að grunni.
     
Heimkynni   N Ameríka (Alaska - Kalifornía).
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning, (sjálfsáning er algeng), græðlingar að vori.
     
Notkun/nytjar   Í kanta, í hleðslur, sem undirgróður, í beð.
     
Reynsla   Meðalharðgerður-harðgerður, en getur átt það til að deyja alveg út eftir nokkur ár.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Rósatrúður
Rósatrúður
Rósatrúður
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is