Jón Thoroddsen - Barmahlíđ

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Narcissus triandrus
Ćttkvísl   Narcissus
     
Nafn   triandrus
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Pálmasunnulilja
     
Ćtt   Amarylladaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   Laukur, fjölćr
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur, ljósgulur (einlit)
     
Blómgunartími   maí-júní
     
Hćđ   0.15-0.3m
     
Vaxtarhrađi  
     
 
Vaxtarlag   minni og fíngerđari en páskaliljur almennt eru
     
Lýsing   blómin eru 3-6 saman á stönglinum, stilklöng, lútandi blöđin mjó, rennulaga
     
Heimkynni   SV Evrópa (Spánn, Portúgal)
     
Jarđvegur   frjór, mildinn, framrćstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   hliđarlaukar
     
Notkun   í skýld skrautblómabeđ eđa steinhćđir
     
Nytjar   Međalharđger
     
Yrki og undirteg.   'Alba', 'Liberty Bells' ljósgul, 'Silver Chimes' hvít/stór, 'Thalia' hvít međ 2-3 blóm á stöngli mm.
     
Útbreiđsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is