Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Paradisea liliastrum
Ættkvísl   Paradisea
     
Nafn   liliastrum
     
Höfundur   (L.) Bertoloni
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Paradísarlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Anthericum liliastrum L.
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hreinhvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   50-60 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Paradísarlilja
Vaxtarlag   Lauf 4-7, 12-25 sm.
     
Lýsing   Blómstönglar 30-60 sm háir. Blómklasar með 3-10 blóm, sem oftast vita öll til einnar hliðar. Blómhlíf trompetlaga, blómhlífarblöð með nögl. Blómhlífarblöð 3-5 sm, hvít, oft með græna odda. Stíll og fræflar uppsveigðir og frjóhnappar festir á bakinu. Hýði 1,3-1,5 sm.
     
Heimkynni   Fjöll í S-Evrópu.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, 2
     
Fjölgun   Skipting á jarðstönglum, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í blómabeð, í blómaengi.
     
Reynsla   Harðgerð planta sem þrífst vel hérlendis. Í Lystigarðinum eru til tvær gamlar plöntur (frá því fyrir 1956) og tvær sem sáð var til 1981, gróðursett í beð 1983, allar þrífast mjög vel.
     
Yrki og undirteg.   Yrkið 'Major' er með stærri blóm og er kröftugri planta.
     
Útbreiðsla  
     
Paradísarlilja
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is