Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Pinus cembra ssp. sibirica
Ættkvísl   Pinus
     
Nafn   cembra
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   ssp. sibirica
     
Höfundur undirteg.   (Du Tour) Rupr.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Síberíufura
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae).
     
Samheiti   P. sibirica Du Tour., P. cembra v. sibirica (DuTour) Loud.
     
Lífsform   Sígrænt tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Kk reklar gulir, appelsínugulir, rauðir.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   -15 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Síberíufura
Vaxtarlag   Tréð getur orðið allt að 40 m í heimkynnum sínum. Krónan grennri en á aðaltegundinni, mjókeilulaga, meira eða minna sporvala á ungum trjám.
     
Lýsing   Frábrugðin aðaltegundinni einkum að því leiti að hún er hávaxnari, verður allt að 33 m há, mjókeilulaga, ung tré oft með sporvala krónu. Brumhlífar glansandi, brúnar. Barr 7-15 sm löng, 1 mm breið, könglar 6-12 sm langir, 5-7,5 sm breiðir, meira en 1,5 × lengri en þeir eru breiðir. Fræ með auðbrjótanlegri skel.
     
Heimkynni   Síbería.
     
Jarðvegur   Fremur rakur, nægjusöm.
     
Sjúkdómar   Laus við sjúkdóma og meindýr.
     
Harka   1
     
Heimildir   1, 2
     
Fjölgun   Sáning, ágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæð, í þyrpingar, í raðir, í beð.
     
Reynsla   Ekki til í Lystigarðinum. Afar harðgerð. Þessi undirtegund verður töluvert hærri en sú evrópska eða um 40 m í heimkynnum sínum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Vex oft á blautum grófum jarðvegi í heimkynnum sínum.
     
Síberíufura
Síberíufura
Síberíufura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is