Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Equisetum fluviatile
Ættkvísl   Equisetum
     
Nafn   fluviatile
     
Höfundur   Linnaeus, Sp. Pl.: 1062. 1753.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fergin (tjarnelfting)
     
Ætt   Equisetaceae (Elftingarætt)
     
Samheiti   Equisetum heleocharis Ehrh. Equisetum limosum L. quisetum lacustre Opiz Equisetum maximum Lam. Equisetum uliginosum H. L. Mühl. ex Willd.
     
Lífsform   Fjölær gróplanta
     
Kjörlendi   Vex í tjörnum, síkjum, mýrum, blautum flóum og víðar, oft í miklum breiðum. Algeng um land allt.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími  
     
Hæð   0.30-0.80 m
     
 
Fergin (tjarnelfting)
Vaxtarlag   Djúplægir, víðskriðulir, greindir jarðstönglar. Af þeim vaxa allgildir ofanjarðarstönglar, uppréttir, blöðóttir, liðskiptir, sívalir með víðu miðholi, greinalausir eða með fáum, stuttum, sívölum greinum, 30-80 sm á hæð.
     
Lýsing   Oft litlir sem engir greinakransar en séu þeir fyrir hendi eru greinar 4-7 strendar, stuttar og strjálar. Tennt, jafnvíð slíður er við hvern stöngullið. Tennur reglulegar, mjóar, sýllaga, svartar, með mjóum himnujaðri, oftast 12-14, oddmjóar, oftast með móleitu belti undir liðskiptingunni. Gróöx endastæð á grænum stönglum, snubbótt í toppinn. Axleggir gildir og stuttir en stundum eru öxin legglaus. LÍK/LÍKAR: Eski. Ferginið er mun mýkra og með mun víðara miðhol, reglulegri og varanlegri slíðurtennur og vex í blautara landi.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   1,2,3,9, HKr
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Algengt um allt land, síst hátt til fjalla og strjált á Vestfjörðum. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Norðurhvel; Evrópa, Asía, N Ameríka.
     
Fergin (tjarnelfting)
Fergin (tjarnelfting)
Fergin (tjarnelfting)
Fergin (tjarnelfting)
Fergin (tjarnelfting)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is