Málsháttur
Oft vex laukur af litlu.
Taraxacum spectabile
Ættkvísl   Taraxacum
     
Nafn   spectabile
     
Höfundur   Dahlst., Bot. Not. 1905: 159 (1905)
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hagafífill
     
Ætt   Asteraceae (Körfublómaætt)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Vex í röku graslend og viðar.
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Maí-ágúst
     
Hæð   0.15-0.35 m
     
 
Hagafífill
Vaxtarlag   Meðalstórir fíflar með ljósgrænum blöðum.
     
Lýsing   Blöðin öll stofnstæð, fjaðurflipótt, smáhærð á efra borði og stundum töluvert brúnflekkótt og með rauðleitri miðtaug. Reifarnar mjóegglaga, uppréttar, lasust aðfelldar eða dálítið útstæðar og niðursveigðar, þunnar og með mismunandi breiðum en greinilegum himnukanti. Blómin öll tungukrýnd, tungur gular. Karfan 3-5 sm í þvermál. Blómgast í maí-ágúst. 2n = 32, 40.
     
Jarðvegur  
     
Heimildir   2,9, HKr
     
Reynsla  
     
     
Útbreiðsla   Algengur um land allt. Önnur náttúruleg heimkynni t.d.: Kanada, Skandinavía, Írland, Mexíkó, Stóra Bretland, N Ameríka.
     
Hagafífill
Hagafífill
Hagafífill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is