Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Polemonium pulcherrimum
Ættkvísl   Polemonium
     
Nafn   pulcherrimum
     
Höfundur   Hook.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Jósefsstigi
     
Ætt   Jakobsstigaætt (Polemoniaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Blár til fjólublár eða hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   20-30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Jósefsstigi
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 15-30(-50) sm hár, stönglarnir meira eða minna uppréttur, næstum hárlausir nema hvað blómskipunin er kirtilhærð. Lauf með 11-25(-37) smálauf, allt að 3,5 x 1,5 sm, gagnstæð eða stakstæð, stöngullauf smá.
     
Lýsing   Blómskipunin þétt, bikar 4-6 mm, flipar lensulaga-aflangir, (sljó)yddir. Krónan 7-13 mm, næstum bjöllulaga, blá til fjólublá eða hvít, krónupípan gul unnan, flipar 8-25 mm.
     
Heimkynni   Bandaríkin (Alaska), og Kanada (Yukon) til Bandaríkjanna (V Utah og Kaliforníu).
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning að hausti.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Mjög breytileg tegund í heimkynnum sínum, smávaxnari í háfjöllum, harðgerð og mikið ræktaður hérlendis. Í Lystigarðinum er til ein gömul planta af þessari tegund, sem þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Jósefsstigi
Jósefsstigi
Jósefsstigi
Jósefsstigi
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is