Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Primula pulverulenta
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   pulverulenta
     
Höfundur   Duthie.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Glæsilykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Dökkrauður.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   70-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Glæsilykill
Vaxtarlag   Hávaxinn lykill, mikið mélugur, laufin kröftug. Stór planta sem myndar margblóma, sumargræna breiðu.
     
Lýsing   Lauf að 30 x 8 sm, öfuglensulaga, bogadregin með óreglulegar tennur, fínhrukkótt, miðtaug hvítgrænleit. Laufleggir með vængi, illa afmarkaðir frá blöðkunni. Blómstilkar allt að 100 sm háir, hvítmélugir. Blóm í mörgum, fjölblóma krönsum. Bikar allt að 8 mm, hvítmélugur að innan, skiptur til hálfs í mjóa, hvassydda flipa. Krónan allt að 3 sm í þvermál, flöt skífa, venjulega fagurrauð með dökkt auga. Krónupípa um 2x lengri en bikarinn, flipar breiðir með djúpa sýlingu.
     
Heimkynni   SV Kína.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1,2
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð í góðu skjóli.
     
Reynsla   Lítt reynd hérlendis. Hefur verið í uppeldi af og til.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Glæsilykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is