Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Salvia pratensis
Ættkvísl   Salvia
     
Nafn   pratensis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hagasalvía
     
Ætt   Varablómaætt (Lamiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fjólublár, sjaldan bleikur eða hvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 100 sm há. Stönglar uppréttir, ógreindir eða greindir, kirtildúnhærðir.
     
Lýsing   Grunnlauf allt að 15 x 5 sm, með legg, heil, egglaga til aflöng, snubbótt í oddinn, hjartalaga við grunninn, jaðrar tenntir til skörðótt, hrukkótt eða meira eða minna dúnhærð. Legglauf miklu minni, færri, legglaus eða með stuttan legg, rauð, flikrótt, laufleggur dúnhærður. Blóm í 5-10 krönsum þar sem eru 4-6 blóm í hverjum kransi, meðalþéttir eða strjálir kransar, sem eru í strjálum, ógreinum eða greinóttum öxum allt að 45 sm, blómleggir allt að 4 mm, dúnhærðir, stoðblöð allt að 3 mm. Bikar allt að 11 mm, bjöllulaga, kirtil-dúnhærð, efri vörin hefur rýrnað, 3-tennt, hálfkringlótt, tennur sýllaga. Krónan allt að 3 sm, en mjög breytileg, fjólublá eða stöku sinnum hvít til bleik, útvíkkuð að ofan, með hreistur, hárlaus innan, efri vörin sigðlaga, hliðaflipar á neðri vörinni oddbaugótttir til aflangir, miðflipinn íhvolfur, framjaðraður. Aldin allt að 2 mm, hnöttótt, brún.
     
Heimkynni   Evrópa.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í skrautblómabeð.
     
Reynsla   Harðgerð og þrífst vel hérlendis.
     
Yrki og undirteg.   'Atroviolacea' er dökkfjólublá, 'Mittsommer' er himinblá.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is